Æfingasvæðið í veronello

Grillaðstaða fyrir grillpartý

Sundlaugasvæði til að kæla sig


Knattspyrnuævintýri á ítalíu með emil hallfreðs
,,Ég og teymið mitt munum leggja áherslu á að hafa æfingarnar skemmtilegar en á sama tíma árangursríkar og krefjandi. Við munum fara vel yfir öll grunnatriði leiksins í jákvæðu, uppbyggjandi og öruggu ítölsku umhverfi. Ég vil að strákarnir fái áskoranir við hæfi og upplifi allar þær mögnuðu tilfinningar sem fótboltinn færir okkur."
Emil Hallfreðs landsliðs- og atvinnumaður til 20 ára.

Knattspyrnuævintýri á ítalíu með emil hallfreðs
Hvenær:
28. júní -
5. júlí 2026
Hvar:
Veronello Resort við Gardavatn
Fyrir hverja:
Knattspyrnumenn fæddir 2010-2012
Uppselt
Hvenær:
26. júlí -
2. ágúst 2026
Hvar:
Veronello Resort við Gardavatn
Fyrir hverja:
Knattspyrnukonur fæddar 2010-2012
Hvenær:
11. - 18. ágúst 2026
Hvar:
Veronello Resort við Gardavatn
Fyrir hverja:
Knattspyrnumenn fæddar 2010-2012
Fyrir 13-15 ára (2010-2012) fótboltasnillinga sem elska fótbolta og vilja víkka sjóndeildarhringinn og prufa eitthvað nýtt
Þjálfarateymi frá Hellas Verona
Frábærar aðstæður til að æfa vel, bæta sig, sjá heiminn, njóta og hafa gaman innan vallar sem utan.
Skemmtiferðir í Gardaland og Caneva Aquapark og að Gardavatni.
Frábær ítölsk knattspyrnuþjálfun í fallegu, öruggu, uppbyggjandi og skemmtilegu umhverfi í Veronello Resort við Gardavatn.
Yfirgripsmikil reynsla og þekking. 20 ára landsliðs og atvinnumannaferill á Ítalíu að baki.
Tækni, sendingar, skot, spil, leikir, leikskilningur/taktík og margt annað skemmtilegt.
26 pláss í boði í hverju ævintýri.
Í sumar mun ég bjóða metnaðarfullum knattspyrnumönnum á aldrinum 13-15 ára (2010-2012) með mér í ógleymanlegt ítalskt fótboltaævintýri. Við munum dvelja og æfa við frábærar aðstæður í Veronello Resort við Gardavatn, en það er æfingasvæði þar sem lið allstaðar frá Evrópu koma saman og æfa, ekki síst á undirbúningstímabilinu.
Ég flýg út og verð með drengjunum allan tímann, innan vallar sem utan og passa að allt fari rétt og vel fram. Með mér verða svo góðir ítalskir þjálfarar sem ég hef kynnst náið við störf mín hér ytra sl. 17 ár.
Til að ná árangri þarf að vera gaman og er því helsta markmið ferðarinnar að drengirnir hafi gaman og njóti þess að æfa vel og spila fótbolta í fallegu umhverfi og góðum félagsskap hvors annars og starfsliðsins.
Ég og teymið mitt munum leggja áherslu á að hafa æfingarnar skemmtilegar en á sama tíma árangursríkar. Við munum fara vel yfir öll grunnatriði leiksins í jákvæðu, uppbyggjandi og öruggu ítölsku umhverfi. Ég vil að strákarnir fái áskoranir við hæfi og upplifi allar þær mögnuðu og jákvæðu tilfinningar sem fótboltinn færir okkur.
Að sjálfsögðu verður líka markmannsþjálfari með okkur sem mun kynna nýjar tæknihugmyndir og koma aðra sýn á markmannsstöðuna, en eins og þekkt er eru ítalskir markmannsþjálfarar hátt skrifaðir innan fótboltaheimsins.
Þó aðalatriði ferðarinnar sé knattspyrna og allt sem að henni snýr að þá munum við líka heimsækja Gardaland og Caneva Aquapark sem eru skemmtigarðar á svæðinu sem/og skoða fegurðina við Gardavatn.
Ég hlakka til að taka vel á móti ykkur á mínum atvinnumanna og heimaslóðum. Njótum þess að spila og æfa fótbolta, sköpum góðar minningar og skemmtum okkur saman á Ítalíu.
Skráning á Abler og nánari upplýsingar á
hluthersdottir@icelandsoccertravel.com og hjá emil@olifa.com
Verð: 395.000 kr.
(Innifalið farastjórn, flug, gisting, fullt fæði, æfingaaðstaða, þjálfun, vatn á æfingum,
æfingafatnaður og þvottur, bolti, rútuferðir, Gardaland, Caneva Aquapark o.fl.)